Alhliða málningar- og viðhaldsþjónusta mannvirkja að innan sem utan.

Vönduð vinna og þrifaleg umgengni. Verkskoðun á höfuðborgarsvæðinu og verðtilboð að kostnaðarlausu.

Starfsmenn Regnbogalita

Regnbogalitir ehf.

Regnbogalitir var stofnað árið 2000 af Hrólfi Inga Skagfjörð löggiltum málarameistara sem hefur verið verktaki í byggingargeiranum síðan 1991. Starfsmenn okkar eru menntaðir og sérhæfðir málarar eða með mikla reynslu í öllu sem tengist málun.

Regnbogalitir búa yfir góðum tækjakosti og mikilli hæfni sem tryggir hraða en á sama tíma góða þjónustu til okkar viðskiptavina.

Af hverju að ráða meistara?

Við erum menntaðir fagmenn sem leiðbeinum við val á efni og samsetningu lita. Við höfum alla þá kunnáttu til að mæta þínum óskum og kröfum.

Fagkunnátta

Við gerum vel ígrundaðar kostnaðaráætlanir sem standast og einungis er notað efni sem höndlar íslenskar aðstæður.

Meiri ending

Við sjáum til þess að góð sprungu- og undirvinna sé í lagi og tryggir meiri endingu. Við vinnum snyrtilega og fagmannlega.

Þjónusta

Við höfum mikla reynslu í öllu sem viðkemur málun. Við leggjum mikinn metnað í okkar verk og viljum ávallt að viðskiptavinir séu sáttir.

Þjónusta

Við höfum mikla reynslu í öllu sem viðkemur málun og viðhaldi mannvirkja.

Innanhússmálun

Allt sem þarf að mála innanhúss — Regnbogalitir eru með reynsluna í verkið.

  • Almenn innanhúsmálun
  • Spörtlun og sandspörtlun
  • Lökkun
  • Endurmálun
Fá tilboð →

Utanhússmálun

Áratuga reynsla í húsamálun á öllum gerðum mannvirkja.

  • Húsamálun
  • Múrverk
  • Sýlanböðun (vatnsfæling)
  • Endurmálun á útveggjum
Fá tilboð →

Gluggar og tréverk

Mikil reynsla í gluggamálun og gluggaviðgerðum.

  • Gluggamálun
  • Gluggaviðgerðir
  • Gluggaskipti
  • Tréverk
Fá tilboð →

Þök

Þakmálun og þakviðgerðir á flestar gerðir húsþaka.

  • Þakmálun
  • Þakviðgerðir
  • Lekaviðgerðir
Fá tilboð →

Háþrýstiþvottur

Er húsið skítugt? Við sjáum um þrif og undirvinnu fyrir málun.

  • Háþrýstiþvottur á húsum
  • Þrif á þökum
  • Undirbúningur fyrir málun
Fá tilboð →

Viðhald og körfubíll

Hvers konar viðhald á eignum og körfubíll til leigu.

  • Viðhaldsþjónusta
  • Körfubíll upp í 28 metra hæð
  • Tilfallandi verkefni
Fá tilboð →

Vatns- og krotvörn

Við höfum mikla reynslu í að vatns- og krotverja mannvirki. Það er nauðsynlegt að vatnsverja steiningu og sjónsteypu á c.a. 4 til 5 ára fresti samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins.

Þegar búið er að vatnsverja og styrkja yfirborðið er kjörið að setja vörn gegn veggjakroti yfir þá fleti sem eru mögulega í hættu á að verða fyrir barðinu á þess háttar skemmdarverkum sem nánast vonlaust er að ná af án þess að krotvörn sé á fletinum.

Góður tækjakostur

Við höfum nýlega bætt við okkur körfubíl sem kemst upp í 28 metra hæð. Hægt er að leigja hann í hvers konar þjónustu, hvort sem það þarf að hreinsa rennur, þrífa glugga eða tengja rafmagn — bæði lítil og stór verk.

Einnig nýtum við bílinn í tilfallandi málningarverkefni hjá Regnbogalitum.

Hafa samband
Körfubíll Regnbogalita við vinnu

Hafa samband

Ert þú með eitthvað í huga? Endilega sendu okkur línu og við verðum í bandi eins fljótt og hægt er! Verðtilboð að kostnaðarlausu og verkskoðun á höfuðborgarsvæðinu.

🕒 Mánudaga – föstudaga: 08:00 – 19:00

📞

Sími

891-9890

📧

Netfang

malarar@simnet.is

📍

Heimilisfang

Pósthólf 12065
132 Reykjavík